Tónlistarmaðurinn Helgi Björns og Reiðmenn Vindanna slógu heldur betur í gegn í haust þegar þeir skemmtu þjóðinni í beinni útsendingu í Sjónvarpi Símans á laugardagskvöldum.
Gleðin heldur áfram þegar þeir mæta á skjáinn á ný laugardagskvöldið 23. janúar næstkomandi.
„Við myndum aldrei halda inn í nýtt ár án þess að bjóða hinn eina sanna Helga Björns velkominn aftur,“ segir Pálmi Guðmundsson, dagskrárstjóri Sjónvarps Símans, í samtali við mbl.is
Þættirnir verða tíu talsins, fram að páskum.