Helgi Björns og hljómsveitin Reiðmenn vindanna verða með aukaþátt í beinni útsendingu í opinni dagskrá í Sjónvarpi Símans næstkomandi laugardagskvöld.
Lokaþátturinn af Það er komin Helgi var sýndur síðasta laugardagskvöld en þar sem nú ríkir samkomubann og margir hafa þurft að setja ferðalög um páskana til hliðar var ákveðið að henda í einn aukaþátt.
„Í ljósi þessara aðstæðna og fjölmargra áskorana ákváðum við að telja í einn páskaþátt,“ segir Helgi í samtali við mbl.is
Fjölmargir listamenn hafa komið fram í þáttunum og samtals hafa verið flutt um 400 íslensk lög í þeim.
„Það er mjög skemmtilegt að hafa getað sýnt breiddina í íslensku söngbókinni, ekki síst þegar lítið hefur verið um tækifæri fyrir tónlistarfólk til þess að koma fram,“ segir Helgi.