Að minnsta kosti þrettán þúsund manns tóku þátt í bingói sem Ali hélt á þriðjudaginn og var á meðal þátttakenda fólk búsett erlendis, segir Einar Páll Gunnarsson, markaðsstjóri Ali, í samtali við mbl.is
Hefur Ali ákveðið að endurtaka leikinn þann 21. apríl næstkomandi.
„Þrettán þúsund mismunandi símanúmer voru skráð til leiks, sem er eina talan sem við höfum til að miða við. Margir voru þó að sækja spjöld fyrir maka og börn svo ég geri ráð fyrir því að spilarar hafi verið fleiri,“ segir Einar. En Bingó-útsendingin fór fram í gegnum Facebook og henni stjórnaði skemmtikrafturinn Hjálmar Örn.
„Margir í kringum okkur, þar á meðal foreldrar mínir, voru orðnir leiðir á að vera í sóttkví og búin að nýta sér alla mögulega afþreyingu sem í boði var. Þau voru búin að horfa á allt sem þau langaði að sjá á Netflix, fara í ótal göngutúra og gátu vitaskuld ekki nýtt sér aðra möguleika eins og bíó, sund eða keilu.“
Langaði þeim hjá Ali að standa fyrir einhverju örlítið öðru vísi, einhverju sem fjölskyldur gætu tekið þátt í saman og haft gaman af.
„Maður hefur heyrt af vinahittingum á fjarskiptaforritum eins og Zoom og ég hugsaði með mér að þetta væri bara eins og slíkur hittingur, nema stigi ofar.“ Nefnir hann í þessu dæmi að hann hafi heyrt af hópi fólks sem tók þátt í bingóinu, en hluti hópsins sé búsettur erlendis. „Þau höfðu samskipti í gegnum Zoom og spiluðu saman bingó!“
Þetta kemur fram á vef mbl