Verslun IKEA í Kauptúni verður lokað frá og með morgundeginum, 24. mars, vegna herts samkomubanns sem tekur gildi á miðnætti. Mun verslunin verða lokuð um óákveðinn tíma, þar til aðstæður leyfa annað.
Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að versluninni verði lokað til að tryggja öryggi starfsfólks og viðskiptavina. Mun vefverslun IKEA þó verða áfram opin og er fyllstu varúðar gætt við afgreiðslu pantana. Viðskiptavinir eru hvattir til að leita nánari upplýsinga á vefnum IKEA.is
Þetta kemur fram á vef mbl.is