Á tíunda tímanum í gærkvöldi lentu bátur og sjóþota, eða svokallað jet ski, í árekstri í Reykjavíkurhöfn. Ökumaður sjóþotunnar var fluttur alvarlega slasaður á sjúkrahús.
Varðstjóri hjá slökkviliði Höfuðborgarsvæðisins staðfesti þetta í samtali við mbl.is. Meiðsl mannsins eru ekki talin lífshættuleg.