Maraþonfundur fór fram í húsakynnum sáttasemjara í gær og lauk honum rétt yfir miðnætti með undirritun kjarasamnings Eflingar -stéttarfélag og samninganefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Hefur því ótímabundnu verkfalli, sem hófst á þriðjudag, verið aflýst og sneru félagsmenn Eflingar hjá Kópavogi, Seltjarnarnesi, Ölfusi og Mosfellsbæ snúa aftur til vinnu nú í morgun.
„Í enn eitt skiptið hefur Eflingarfólk í minnst metnu störfum samfélagsins sýnt að jafnvel grimmustu stofnanir valdsins hafa ekki roð við þeim þegar þau koma fram baráttuglöð og sameinuð. Í enn eitt skiptið hafa þau sannað að réttlát og staðföst barátta láglaunafólks í gegnum sitt stéttarfélag er ekki bara réttur okkar heldur skilar hún líka raunverulegum árangi,“ sagði Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.
„Ég vil líka benda á hversu mikilvæg skilaboð félagsmenn okkar senda inn í samfélagsástandið með þessum árangri. Ef einhver hélt að kórónaveirufaraldurinn og efnahagslægðin sem honum fylgir yrði átylla til að skerða kjör láglaunafólks og berja niður í þeim baráttuandann, þá hafa félagsmenn okkar hjá sveitarfélögunum sýnt að það er ansi stór misskilningur. Baráttan fyrir réttlátu samfélagi er lifandi og hefur aldrei skipt meira máli en einmitt núna,“ sagði Sólveig, við undirritun samningsins.
Hefst nú vinna við kynningu samningsins og undirbúning atkvæðagreiðslu en samningurinn er undirritaður með fyrirvara um samþykki þeirra 270 félagsmanna sem undir honum munu starfa.
Þetta kemur fram á vef Mbl