Aukinn kraftur hefur verið settur í undirbúning næstu kvikmyndar sem byggð verður á bók eftir Yrsu Sigurðardóttur. Bókin heitir Kuldi og kom út árið 2012 en sama ár keypti kvikmyndaframleiðandinn Sigurjón Sighvatsson kvikmyndaréttinn að bókinni. Þetta kemur fram á mbl.is.
Kvikmyndin Ég man þig, sem einnig er byggð á bók eftir Yrsu, hefur verið í bíó síðustu vikur en Sigurjón framleiddi einnig þá mynd. Hún hefur notið mikilla vinsælda allt frá því að hún var frumsýnd.
Erlingur Óttar Thoroddsen hefur verið ráðinn til að skrifa handrit og leikstýra Kulda.