Íslenska landsliðið í fótbolta hefur slegið í gegn á HM í Rússlandi og mikið verið fjallað um liðið frá litlu eyjunni lengst norður í Atlantshafi. Liðið hefur fengið aðdáendur um heim allan, meðal annars í Bangladess.
Sayeed Mojumder hefur vakið mikla athygli á Twitter fyrir að vera gallharður stuðningsmaður íslenska landsliðisins. Hann saumaði meðal annars risastóran íslenskan fána og komst í fréttirnar þar í landi.
Sayeed heillaðist af íslenska landsliðinu og landinu sjálfu. Hann heldur að sjálfsögðu með Íslandi á HM og sýndi stuðning sinn í verki og saumaði risastóran íslenskan fána.
I love iceland football team from Bangladesh.I made to national flag of iceland.we will won to all match and get to world cup so best of luck iceland football team. pic.twitter.com/wKZ1WGIThV
— Mohammad Sayed (Iceland) (@sayedmojumder2) June 10, 2018
Þetta uppátæki hans vakti athygli í heimalandinu og komst Sayeed í landsfréttirnar á dögunum.
Sayeed birtir skemmtilegt myndband af fréttinni á Twitter þar sem hann talar um af hverju hann haldi með Íslandi á HM, sýnir fánann og auðvitað, eins og sannur íslenskur aðdáandi, tekur hann HÚH-ið fyrir myndavélarnar.
My Flag of Iceland published in the media of the whole of Bangladesh. Many wishes for the Iceland team.???????????????? pic.twitter.com/jOrChXromR
— Mohammad Sayed (Iceland) (@sayedmojumder2) June 21, 2018