Í gærkvöldi fjölluðu Stundin og DV um upptökur þar sem þingmenn Miðflokksins heyrast tala með niðrandi hætti um kvenkyns stjórnmálamenn í samtölum sín á milli. Þeir Karl Gauti Hjaltason, þingmaður Flokks fólksins, og Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, hafa beðist afsökunar á ummælum sínum sem beindust gegn Ingu Sæland, formanni Flokks fólksins.
Stundin segir frá því að Bergþór Ólason hafi kallað Ingu Sæland, formann og stofnanda Flokks fólksins, „húrrandi klikkaða kuntu“. Hann skrifaði á Facebook síðu sinni í gærkvöldi að hann hafi nú þegar rætt við hana og beðið hana afsökunar á því hvernig hann talaði um hana. Hann segir að samstarf við Flokk fólksins hafi verið með miklum ágætum síðasta árið og málefnalegur samhljómur sé um marga hluti.
„Í kvöld hafa verið fluttar fréttir af hittingi sex þingmanna á hótelbar í liðinni viku. Eins og fram hefur komið varð mér þar hressilega á í messunni hvað munnsöfnuð varðar, í garð manneskju sem hafði ekkert sér til sakar unnið til að verðskulda þá yfirhalningu. Þar virðist ég hafa notað orðfæri sem er mér framandi og ég veit ekki til að ég hafi áður notað,“ skrifar Bergþór á Facebook.
Flest þekkjum við að hafa í lokuðu rými talað óvarlega, og jafnvel af ósanngirni um annað fólk, þá sérstaklega þegar öl er haft um hönd, en það breytir því ekki að svona á maður ekki að tala um fólk
Karl Gauti Hjaltason sendi frá sér yfirlýsingu í nótt þar sem hann segist harma ummælin. Hann segist ekki á förum úr Flokki fólksins og að hann styðji stefnuna og beri traust til formannsins, Ingu Sæland.
„Við höfum unnið að einurð fyrir kjósendur okkar og lagt fram mörg góð mál sem við hétum því að vinna að,“ segir hann.