Kona um fimmtugt hefur verið sakfelld fyrir manndráp, tilraun til manndráps og stórfellt brot í nánu sambandi fyrir að hafa orðið sex ára gömlum syni sínum að bana á heimili þeirra að Nýbýlavegi, aðfaranótt 31. janúar 2024.
Dómurinn hefur ekki verið birtur en hann var kveðinn upp í morgun og var konan þar dæmd í 18 ára fangelsi. Hún var sakfelld fyrir manndrápstilraun gagnvart 11 ára gömlum syni sínum e en manndráp gagnvart yngri syni sínum.
Samkvæmt frétt DV bar móðirin við ósakhæfi vegna andlegs ástands á verknaðarstundu en matsmenn sem voru kallaðir fyrir dóminn mátu hana sakhæfa.
„Samkvæmt ákæru svipti konan son sinn lífi með því að setja kodda yfir andlit hans, þar sem hann lá sofandi í sófa, þrýsta með báðum höndum á koddann fyrir vit drengsins, og þrýsta á háls hans og efri hluta brjóstkassa. Linaði hún ekki tökin fyrr hún hún varð þess áskynja að drengurinn var látinn, en hann lést af völdum köfnunar.
Síðan fór hún inn í svefnherbergi þar sem eldri bróðir drengsins svaf, tók fyrir vit hans með annarri hendi og í hnakka hans með hinni og þrýsti andlitinu í rúmið, þannig að drengurinn náði ekki andanum. Drengurinn vaknaði við atlöguna og gat losað sig úr taki móður sinnar,“ segir í frétt DV af málinu.