Kaffibolli merktur RÚV sést í stiklu fyrir aðra þáttaröð dramaþáttanna Succession sem bandaríska framsleiðslufyrirtækið HBO sér um.
Ekki liggur fyrir hvort eða hvernig Ríkisútvarpið mun flækjast inn í söguþráð þáttanna sem fjalla um valdamikla fjölskyldu, sem stýrir alþjóðlegu fjölmiðlaveldi.
Í frétt á mbl.is í dag kemur fram að enginn á RÚV kannist við bollann og Erna Kettler, dagskrárstjóri RÚV, segir í samtali við vefinn að slíkur bolli hafi aldrei verið í umferð hjá fyrirtækinu.