Eggert Skúlason er hættur sem annar ritstjóra DV. Hann ritstýrir síðasta blaðinu sínu í dag. Þetta kemur fram á mbl.is
Í samtali við mbl.is segir hann blaðið á morgun það síðasta blaðið undir sinni stjórn. Hann bæti við að alla tíð hafi verið unnið eftir bestu sannfæringu og að blaðið hafi á þessum tíma ekki fengið á sig málshöfðun.
Sumir kalla það slöpp vinnubrögð, en ég segi að við höfum vandað okkur.
Eggert tók við sem ritstjóri ásamt Kolbrúnu Bergþórsdóttur í desember árið 2014 eftir mikil læti sem enduðu á því að Vefpressan ehf. keypti DV.