Breski bílaframleiðandinn The Rover Company kynnir nýjan Land Rover fyrir alþjóðlegum her bílablaðamanna hér á landi í nóvember. Þetta kemur fram á Mbl.is. 160 Land Rover jeppar verða fluttir til landsins og prófaðir á Suður- og Vesturlandi.
Ný gerð Land Rover var frumsýnd í Mexíkó á miðvikudaginn en þessi nýja gerð er arftaki Freelander-jepplingsins. Nýi bíllinn kallast Land Rover Discovery Sport og er talsvert minni en stóri bróðirinn, Land Rover Discovery.
Samkvæmt Mbl.is var nýi Land Roverinn fluttur til landsins í sumar vegna myndatöku á kynningarefni.
Var mikið gert til að enginn kæmist á snoðir um viðburðinn. Mikill viðbúnaður var á geymslusvæði Pegasusar í júlí þegar bíllinn kom hingað og notast var við sérstakar yfirbreiðslur á hjólagrindum til að hægt yrði að fela bílinn skyndilega ef svo bæri undir. Afraksturinn má sjá á myndum þeim sem fylgja heimsfrumsýningu bílsins.
Afar viðeigandi er að Rover kynni nýjan bíl á Íslandi þar sem fáar þjóðir hafa eignast jafn marga bíla frá framleiðandanum, jafnvel þótt gamla góða höfðatalan sé ekki notuð í útreikningana. Range Rover var afar vinsæll bíll í góðærinu og salan er að taka við sér á ný.