Menn köstuðu eggjum í konu sem var á leið heim af æfingu í World Class í Laugardal á mánudagskvöld um klukkan ellefu. Þá öskruðu mennirnir á hana að hún sé hóra og mella áður en þeir keyrðu burtu.
Þetta kemur fram í frétt mbl.is en konan, Sigríður Eyþórsdóttir, sagði frá atvikinu á Facebook.
Sigríður hafði lagt bílnum sínum á bílastæði við World Class og var komin að bílnum þegar einhver keyrir aftan að henni og kallar eitthvað. „Ég lít við og þá er einhverju kastað í mig og ég átta mig ekki strax á því hvað væri í gangi. Síðan sé ég að ég er öll úti í eggjum,“ segir hún í samtali við mbl.is.
Eggin lentu á henni en einnig á bilnum, bæði að innan og utan.
„Þegar þeir keyra burt þá öskra þeir á mig að ég sé fokkin hóra og mella og einhvern algjöran viðbjóð,“ segir Sigríður. Hún segir að árásin hafi verið tilefnislaus og að hún viti ekki hvaða menn voru að verki. Búið er að tilkynna málið til lögreglu.