Auglýsing

„Höfum einfaldlega ekkert í höndunum til að segja fyrir um lokin á þessum atburðum“

„Höfum einfaldlega ekkert í höndunum til að segja fyrir um lokin á þessum atburðum,“ segir Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði, um eldsumbrotin í Grindavík í viðtali við Víkurfréttir.

„Gosvirkninni sem nú er búin að vera í gangi gæti hætt í sumar, en hún gæti líka staðið í ár í viðbót. Við höfum einfaldlega ekkert í höndunum til að segja fyrir um lokin á þessum atburðum.“

Þá segir Magnús Tumi jafnframt við Víkurfréttir að eldsumbrotin við Grindavík séu svipuð því sem sást í Kröflueldum, bara á öðrum tímaskala. Magnús segir engin merki hafa komið fram sem benda til þess að það dragi úr innrennsli kviku að neðan. Meðan svo er, er ekkert hægt að segja til um hve lengi þessi virkni mun standa.

„Gosvirkninni sem nú er búin að vera í gangi gæti hætt í sumar, en hún gæti líka staðið í ár í viðbót. Við höfum einfaldlega ekkert í höndunum til að segja fyrir um lokin á þessum atburðum.“

Gosið hófst fyrir 14 dögum

Eldgosið við Sundhnúksgígaröðina sem hófst fyrir 14 dögum helst stöðugt. Einn gígur er virkur og hefur virknin verið svipuð síðustu daga. Skjálftavirkni hefur verið afar lítil síðustu viku, einungis örfáir skjálftar hafa mælst.

Eins og fram kom í fréttum um helgina tók hraunstreymi að aukast neðan við Sýlingarfell til vesturs og Grindavíkurvegur fór undir hraun í þriðja sinn frá því eldvirknin hófst við Sundhnúk í nóvember síðastliðinum. Enn er hreyfing á hrauntungunni sem rennur nú til norðvestur eftir svipuðum farvegi og sú sem rann yfir Grindavíkurveg á laugardag. Virkur jaðar hennar er þó enn í nokkur hundruð metra fjarlægð frá veginum og hreyfist afar hægt. Hraun safnast enn í hrauntjörn rétt suðaustan Sýlingarfells sem gæti tæmt sig að nýju og komið af stað öðru áhlaupi á næstu dögum.

Það lítur út fyrir að landris sé hafið að nýju síðan um helgina og landsigið sem mældist fyrstu daga gossins því lokið. Ekki er hægt að meta hraðan á landrisinu á þessari stundu, en gera megi ráð fyrir að innflæði kviku í kvikusöfnunarsvæðið sé orðið meira en útstreymi úr gígnum.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing