Kylie Jenner, athafnakona og yngsta systirinn í Kardashian-fjölskyldunni, á von á barni ásamt kærasta sínum, rapparanum Travis Scott. Þetta kemur fram á vefmiðlunum TMZ.
Samkvæmt frétt TMZ byrjaði hin tvítuga Kylie að segja vinum gleðifréttirnar fyrr í mánuðinum á tónlistarhátíðinni Day N Night í Kaliforníu. Heimildir TMZ herma að Travis Scott hafi einnig sagt vinum sínum fréttirnar. Vefmiðillinn virðist nokkuð viss í sinni sök og vísar í margar heimildir.
Kylie og Travis verið sama frá því í apríl.