Konu sem slasaðist í skipulögðum hópleikfimitíma í World Class í Kópavogi í árslok 2011 hafa verið um tæplega 5,3 milljónir í bætur. Þetta kemur fram á Mbl.is.
Slysið sem átti sér stað á námskeiðinu „3×5 Súperátak“. Þar gerðu þátttakendur æfingu með bolta sem er um 65 cm á hæð. Þegar konan gerði æfinguna, undir handleiðslu þjálfara, missti hún jafnvægið og skall með vinsti öxl í gólfið. Við það hlaut hún varanlega örorku upp á 7% og tímabundið atvinnutjón.
Tryggingafélag World Class, Vátryggingafélag Íslands, var einnig dæmt í Héraðsdómi Reykjavíkur til að greiða eina milljón í málskostnað vegna málsins.