Leiklistarneminn og sprelligosinn Vilhelm Netó neyddist til þess að loka Twitter aðgangi sínum í gær vegna áreitis sem hann hefur fengið eftir fréttaflutning DV vegna nauðgunarmáls Kjartans Guðjónssonar leikara.
Forsaga málsins er sú að Vilhelm sagði það ólíðandi að dæmdir nauðgarar og menn sem hafa verið kærðir oft fyrir nauðgun haldi áfram að fá vinnu. Vilhelm nafngreindi engan í tísti sínu en í svörum við tísti hans var Kjartan Guðjónsson nafngreindur og einnig í frétt DV.
Kjartan hefur undanfarið birst á sjónvarpsskjá landsmanna í auglýsingum fyrir SS pylsur. Þær auglýsingar hafa nú verið teknar úr umferð vegna dóms Kjartans. Steinþór Skúlason, forstjóri SS, segir í samtali við DV að Kjartan hefði ekki verið ráðinn í hlutverk Árna pylsusala hefði fyrirtækið vitað af dómnum.
Kjartan var árið 1989 dæmdur í 15 mánaða fangelsi fyrir hrottafengna nauðgun. Viðbrögð margra við frétt DV eru þau að Vilhelm sé vondi kallinn fyrir að rifja það upp. Þingmaðurinn Brynjar Níelsson er einn af þeim en hann gagnrýndi Vilhelm opinberlega á Facebook síðu sinni í gær og sagði hann í harðri keppni við Pírata um réttlætis- og siðferðisverðlaun ársins.
„Honum finnst fullkomlega eðlilegt og siðferðilega rétt að leikarinn, Kjartan Guðjónsson, megi hvergi starfa til að hafa ofan í sig og á, þar sem hann hafi fengið 15 mánaða fangelsisdóm fyrir tæpum 30 árum. Nú er bara að vona að Vilhelm Neto misstigi sig aldrei á hálri braut réttvísinnar svo hann þurfi ekki að eyða lífinu allslaus á framfæri skattgreiðenda,” skrifar Brynjar.
Sigurður Bjartmar segir á Twitter að það sé hinsvegar ekki upprifjunin á málinu sem sé ógeðsleg heldur málið sjálft. Fleiri taka í sama streng og Vilhelm hefur fengið mikinn stuðning á Twitter þar sem hann er gífurlega vinsæll.
Upprifjunin á málinu er ekki ógeðsleg heldur málið sjálft. Það er mjög hættulegt þegar manneskjur í valdastöðum beita sér fyrir þöggun. Hlustaðu á það sem páfinn hefur að segja um þetta. Kaþólska kirkjan er meira að segja hætt þessu! @BrynjarNielsson pic.twitter.com/lOh2qe23fv
— Sigurður Bjartmar (@sbjartmar) August 25, 2018
Ef þér finnst það ósanngjarnt að fólk tali um nauðgun sem gerðist fyrir “löngu” ertu að verja nauðgara og ert hluti af nauðgunarmenningu and thats the tea
— ✧*̣̩˚̣̣⁺̣??????.₊̣̇. ✧ (@ofbeldi) August 25, 2018
Það er hreint ekki skrítið að Brynjar Níelsson sé á bömmer, samfélagið hefur bókstaflega verið sett saman utan um karla eins og hann (og mig) síðustu aldirnar. Alltaf sökkí þegar vegið er að forréttindum manns. Binnzó er forsöguleg skepna, blessaður karlinn.
— Kött Grá Pje (@KottGraPje) August 25, 2018
"Já Vilhelm Neto það er bara eins gott að þú gerist ekki sakfelldur nauðgari í framtíðinni. Við skulum sjá hvernig þér líður þá ?"
–Vinir sakfellds nauðgara
— Punished Venom Salómon Smári (@kjarnorkinn) August 25, 2018
Mér finnst alveg hreint út sagt ólíðandi að Vilhelm Neto sé afhausaður af fávitum fyrir að standa með brotaþolendum nauðgunar og kynferðisofbeldis. Þetta er svo sick dæmi. Hann nafngreinir engan eða vísar í eitt eða neitt. Ógeðsleg afstaða er sýnd gegn þolanda með þöggun.
— Strúna ?? (@crazy_bird_lady) August 26, 2018