Auglýsing

Samherji hvetur til „listrænna sköpunar“ en segir listaverk Odee „ekkert með list að gera“

Fiskútflutningsfyrirtækið Samherji segir í yfirlýsingu á vefsíðu sinni að á sama tíma og það hvetji til listrænnar sköpunar að þá verði ekki við unað að íslenskur listamaður dreifi „fölskum fréttum“ í nafni félagsins og noti til þess nafn og myndmerki fyrirtækisins. Tilefnið er að sjálfsögðu dómsmál sem félagið höfðaði gegn íslenska listamanninum Oddi Eysteini Friðrikssyni, sem gengur undir nafninu Odee. Samherji segir Odee hafa „vilt á sér heimildir og notað til þess hugverk í eigu Samherja.“

Málið hefur vakið gríðarlega athygli úti um allan heim en í vikunni fór fram málflutningur í málinu í Bretlandi en þar höfðaði Samherji málið gegn Odee. Samherji segir „misnotkunina“ hafa náð til þriggja heimshálfa og að „listgjörningur“ Odee hafi verið sendur með tilkynningu á 100 fjölmiðla á Íslandi, í Noregi, Bandaríkjunum, Bretlandi, Kanada og Ástralíu.

We’re Sorry

Um var að ræða falska afsökunarbeiðni sem var hluti af lokaverkefni listamannsins en þar var á ferðinni vefsíða þar sem stóð á með stóru letri: „We‘re Sorry“ og tengdist vefsíðan spillingarmálinu sem skók íslenskan og namibískan viðskiptaheim. Sjálfur segist Odee hafa viljað sem Íslendingur og listamaður biðja Namibíumenn afsökunar fyrir hönd íslensku þjóðarinnar.

Það tók Samherji hinsvegar ekki í mál og segir í yfirlýsingu á vefsíðu sinni að þetta hafi „ekkert með list eða tjáningarfrelsi að gera“ þar sem vörumerki Samherji hafi verið byggt upp á liðlega fjórum áratugum „um allan heim og skylda félagsins væri að verja lögbundið vörumerki félagsins.“ Þá segir fyrirtækið einnig að það hafi engan áhuga haft á að höfða umrætt dómsmál gegn Odee umfram það að fá hann til að leiðrétta „vísvitandi brot sín“ og að honum hafi verið boðið að ljúka því utan dómstóla en Odee hafi hafnað því.

Yfirlýsingin í heild sinni:

Í vikunni fór fram málflutningur í Bretlandi í máli Samherja gegn Oddi Eysteini Friðrikssyni vegna þess að hann hafði vilt á sér heimildir og notað til þess hugverk í eigu Samherja.

Í maí á síðasta ári setti Oddur Eysteinn upp heimasíðu sem var vistuð í Bretlandi, í nafni og með myndmerki Samherja og dreifði fölskum fréttum í nafni félagsins‏‏.
Skömmu síðar lýsti Oddur Eysteinn verkinu á hendur sér og sagði það hluta af listgjörningi.

Misnotkunin á vörumerki Samherja náði til þriggja heimsálfa. Tilkynningar voru sendar til um 100 fjölmiðla á Íslandi, Noregi, Bandaríkjunum, Bretlandi, Kanada og Ástralíu.
Öllum má ljóst vera að þegar Oddur Eysteinn opnaði vefsíðu með léninu -samherji.co.uk- sem var eftirlíking af opinberri síðu Samherja, olli slíkt ruglingshættu bæði hjá almenningi og viðskiptavinum.

Þá er rétt að greina frá því að í þessari misnotkun fólst ekki einungis listrænn tilgangur eins og höfundur heldur fram, því auk þess var reynt að hafa fé af Samherja með því að fela auglýsingastofu birtingu á auglýsingaefni af sama tagi gegn greiðslu frá Samherja.

Við slíkt er að sjálfsögðu ekki hægt að una og hefur ekkert með list eða tjáningarfrelsi að gera. Vörumerki Samherja hefur verið byggt upp á liðlega fjórum áratugum um allan heim og skylda félagsins er að verja lögbundið vörumerki félagsins.
Samherji átti fárra kosta völ en að leita til dómstóla, sem eru hinn hefðbundni vettvangur til úrlausna deilumála. Samherji hafði engan áhuga á að höfða ofangreint mál gegn Oddi Eysteini umfram það að fá hann til að leiðrétta vísvitandi brot sín og bauð honum að ljúka málinu utan dómstóla með því að afhenda Samherja lénið og gangast við því að endurtaka ekki brot sín. Oddur hefur kosið að hafna því og taka til varnar í málinu.

Samherji styður stjórnarskrárvarið tjáningarfrelsi listamanna og annarra og tekur enga afstöðu með eða á móti listaverkum einstakra aðila en hér var um að ræða víðtækt alvarlegt brot sem ekki var hægt að réttlæta með vísunum til listrænnar tjáningar.

Samherji hvetur til listrænna sköpunar og hefur haft það að samfélagslegu markmiði að styðja við listamenn í gegnum árin. Hvetur Samherji Odd Eysteinn til frekari verka en um leið að virða réttindi og störf annarra samborgara sinna samhliða listsköpun sinni.

 

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing