Ekki verður sett upp önnur geit við IKEA í Kauptúni í Garðagæ fyrir jólin í ár í stað þeirrar sem brann til kaldra kola aðfaranótt mánudags eftir að kveikt var í henni.
Markaðs- og umhverfisfulltrúi IKEA vísar því að bug að fyrirtækið hafi sjálft staðið fyrir íkveikjunni.
Farið verður fram á skaðabætur vegna tjónsins en ekki liggur fyrir hversu há krafan verður.
Sjá einnig: Æsilegur bílaeltingaleikur starfsmanns IKEA og brennuvarganna endaði á Bústaðavegi
Guðný Camilla Aradóttir, markaðs- og upplýsingafulltrúi IKEA, segist í samtali við Nútímann hafa brugðið þegar hún las athugasemdir við fréttir fjölmiðla af brunanum í gær.
„Fólk hefur gríðarlegan áhuga á geitinni okkar en virðist þó skiptast í hópa,“ segir Guðný.
Hún segir að sumir virðist elska geitina og skammast út í þá sem geti ekki látið eigur annarra í friði. Aðrir telji aftur á móti að bruninn sé hluti af markaðssetningu IKEA og að starfsmennirnir vonist til að kveikt sé í henni þannig að búðin fái meiri athygli.
Þá segist Guðný einnig hafa séð kenningar um að starfsmenn IKEA hafi sjálfir kveikt í jólageitinni. Hún segir það fjarri lagi.
„Okkur finnst þetta mjög leiðinlegt, það var von okkar að hún fengi að standa,“ segir Guðný.