Sjálfstæðisflokkurinn í Vestmannaeyjum er búinn að kæra úrslit sveitarstjórnarkosninganna þar til sýslumanns. Kæran er vegna fjögurra utankjörfundaratkvæða sem skiluðu sér ekki og vegna myndbirtingar á samfélagsmiðlum af atkvæði. Frá þessu er greint á vef Morgunblaðsins.
Í tilkynningu frá Sjálfstæðisflokknum í Vestmannaeyjum kemur fram að atkvæðin fimm kunni að geta breytt úrslitum kosninganna. Samkvæmt Elliða Vignisson fráfarandi bæjarstjóra neitaði kjörstjórn að taka á móti fjórum utankjörfundaratkvæðum sem bárust innan við mínútu of seint.
Trausti Hjaltason, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Eyjum, segir það augljóst að löngu hefði verið búið að kjósa þó svo að illa hefði gengið að koma atkvæðunum til Vestmannaeyja. Hann segir það vera skyldu þeirra að láta á það reyna hvort að ekki sé brotið á kjósendum í þessu tilfelli.
Hreinn meirihluti Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum féll í kosningunum og var í gær tilkynnt um að Eyjalistinn og H-listinn, Fyrir Heimaey, hafi komið sér saman um að mynda nýjan meirihluta í bæjarstjórn Vestmannaeyja og að Íris Róbertsdóttir yrði nýr bæjarstjóri.