Félag heyrnarlausra birti táknmálsútgáfu af stuðningsmannalagi Tólfunnar, „Áfram Ísland“, til heiðurs íslenska landsliðinu og stuðningsmönnum þess og í tilefni af því að HM hefst í dag.
Það er Magni Ásgeirsson sem syngur lagið á íslensku en Sindri Jóhannsson flytur táknmálssönginn í nýrri þýðingu lagsins á íslensku táknmáli.
Forsvarsmenn félagsins hvetja alla landsmenn til að læra lagið bæði á íslensku og á táknmáli.