Auglýsing

Uppboð á sætum í Saga Class

Icelandair hóf nýlega að leita tilboða meðal farþega á almennu farrými í laus sæti á Economy Comfort og Saga Class. Túristi.is greinir frá þessu. Uppboð hefjast tíu dögum fyrir brottför og tveimur sólarhringum fyrir brottför kemur í ljós hvort þú hafir hreppt mjúka sætið, fríu veitingarnar og góða fótarýmið.

Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, segir í samtali við Túristi.is að flugfélagið sé enn að prófa sig áfram með uppboðin.

Verðunum er stýrt af þeim sem bjóða í, og þannig gefum við ekki út neitt lágmarksverð. Þetta er jafnframt háð framboði sæta og er eingöngu í boði ef við náum ekki að selja þau með venjulegum leiðum sem getur verið mjög mismunandi eftir flugleiðum og tíma dags sem flogið er. Viðtökurnar eru í samræmi við væntingar.

 

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing