Fulltrúar minnihlutans í Reykjavík lögðu fram bókun á borgarráðsfundi síðasta fimmtudag þar sem lýst var yfir óánægju með fjarveru borgarstjóra, Dags B. Eggertssonar, á fundinum vegna sumarleyfa. Eyþór Arnalds segir í samtali við Morgunblaðið í dag að bókunin hefði ekki verið lögð fram ef flokkarnir hefðu vitað af veikindum dags.
Þar kemur fram að fulltrúar minnihlutans í borgarstjórn hafi fyrst frétt af veikindum Dags í Fréttablaðinu á laugardagsmorgun. Þar var greint frá því að Dagur glími við sjaldgæfan gigtarsjúkdóm.
Eyþór Arnalds segir að fréttirnar hafi komið borgarfulltrúum verulega á óvart. „Við óskum honum að sjálfsögðu góðs bata og að meðferðin gangi vel,” segir Eyþór.
Dagur segist stefna á að mæta aftur til vinnu eftir sumarleyfi en sé þó ekki viss um hvaða áhrif gigtin hafi á starf hans sem borgarstjóra.
Hér má sjá bókun meirihlutans í heild sinni
„Stjórnarandstaðan telur það óásættanlegt að borgarstjóri skuli vera fjarverandi vegna sumarleyfis á síðasta reglulega fundi borgarráðs fyrir sumarfrí ráðsins. Það er sérstaklega ámælisvert í ljósi þeirra alvarlegu mála sem upp hafa komið síðustu daga, sem brýnt er að fjallað sé um áður en borgarráð fer í sumarfrí. Þannig er ekki ásættanlegt að borgarstjóri sendi staðgengil fyrir sig á fundinn. Þessi mál sem um ræðir eru eftirfarandi: álit umboðsmanns Alþingis um viðvarandi og vaxandi vanda heimilislausra, dómur Héraðsdóms Reykjavíkur sem dæmt hefur Reykjavíkurborg til að greiða starfsmanni Ráðhúss Reykjavíkur skaðabætur vegna slæmrar framkomu skrifstofustjóra skrifstofu borgarstjóra og borgarritara og úrskurður kærunefndar jafnréttismála vegna brots Reykjavíkurborgar gegn lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla við ráðningu borgarlögmanns í ágúst árið 2017.“