Auglýsing

Kim vissi ekki að Kayne ætlaði að bjóða sig fram sem forseti

Kim Kardashian vissi ekki að Kanye West hefði í hyggju að bjóða sig fram sem forseti Bandaríkjanna árið 2020. Þetta kom fram í viðtali við Kim í þætti Ellenar Degeneres í dag. Viðtalið má sjá hér fyrir ofan.

Kanye tilkynnti á myndbandaverðlaunum MTV á dögunum að hann ætli að bjóða sig fram árið 2020. Yfirlýsingin vakti mikla athygli en Kim sagði í viðtalinu við Ellen að málið hafi ekki verið rætt á heimilinu.

„Hann var að segja mér fréttir,“ sagði hún.

Honum er alvara og ég trúi því. Ef hann einbeitir sér að því gerir hann sitt besta. Það hefur verið athyglisvert að fylgjast með umræðunni í kjölfar yfirlýsingarinnar.

Kayne hefur þó viðurkennt að hafa verið skakkur þegar hann lýstu þessu yfir. „Þetta var skemmtilegt kvöld,“ sagði Kim létt. Horfðu á viðtalið hér fyrir ofan.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing