Um hvað snýst málið?
Stjórnendur FIFA eru sakaðir um að hafa þegið tugi milljóna Bandaríkjadala í mútur undanfarna áratugi.
Um tvær rannsóknir er að ræða. Önnur tengist áratuga löngu fjársvikamáli en hin mútugreiðslum í tengslum við ákvörðun um að halda HM í knattspyrnu í Rússlandi 2018 og Katar 2022.
Hvað er búið að gerast?
Svissneska lögreglan gerði húsleit í höfuðstöðvum FIFA í Zürich og hefur lagt hald á ýmiskonar gögn.
Sex stjórnendur FIFA voru handteknir á hóteli í sömu borg og eru þeir grunaðir um aðild að fjársvikamáli. Þeir eru grunaðir um að hafa þegið mútur og fleiri greiðslur frá því snemma á tíunda áratugnum til dagsins í dag.
Þegar hafa einhverjir játað sök í málinu.
Tíu til viðbótar verða yfirheyrðir en þeir tóku þátt í staðarvali á HM á árunum 2018 og 2022.
Sepp Blatter, forseti FIFA, er ekki á meðal þeirra sem hafa verið handteknir. Ekki liggja fyrir upplýsingar um hvort hann sjálfur er til rannsóknar hjá bandarískum yfirvöldum.
Hvað gerist næst?
Óvíst er hvaða afleiðingar málið hefur. Málið er þó slæmt fyrir FIFA og Sepp Blatter sem sækist eftir endurkjöri á aðalfundi FIFA í Sviss á föstudag.
Örskýringar eru 200 orða fréttaskýringar Nútímans um mál sem mikið er fjallað um. Sendu okkur póst ef þú ert með hugmynd að örskýringu.