Fréttir
Í sumar varð Bandaríkjamaðurinn Austin Weber fyrir því óláni að kærastan hans sleit sambandinu við hann—og þá stuttu fyrir Japansferð sem þau höfðu bókað í sameiningu.
Weber dó þó ekki ráðalaus og bauð föður sínum með í ferðina.
Sér til hughreystingar tók hann upp ofangreint myndband þar sem hann flytur lagið Mamma Mia eftir sænsku poppsveitina ABBA en útkoman er vægast sagt stórbrotin.
Myndbandið hefur vakið mikla athygli á vefsíðu Reddit.