Auglýsing

Snoop Dogg og Lil Duval hvetja alþjóð til að brosa: „Smile Bitch“ (myndband)

Fréttir

Síðastliðinn 21. júlí gaf uppistandarinn Lil Duval út myndband við lagið Smile Bitch en lagið skartar röppurunum Snoop Dogg og Ball Greezy (sjá hér að ofan). Er hér á ferðinni feel good lag af bestu gerð þar sem fyrrnefndir listamenn hvetja hlustendur til að líta á björtu hliðar lífsins og brosa. 

Lil Duval heitir réttu nafni Roland Powell og er bandarískur grínisti frá Flórída. Árið 2005 komst Duval í úrslit grínkeppninnar Coming to the Stage á sjónvarpsstöðinni BET og er fastagestur í þáttunum Guy Code og Hip Hop Squares á sjónvarpsstöðinni MTV2. 

Hér fyrir neðan má svo sjá tónlistarmanninn Future og grínistann Kevin Hart bregðast við laginu Smile Bitch—ásamt öðru efni frá Duval.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing