Fréttir
Á morgun (3. janúar) fer fyrsti þáttur sjónvarpsseríunnar Surviving R. Kelly í loftið á bandarísku sjónvarpsstöðinni Lifetime. Um er að ræða einskonar heimildarmynd—sem gefin er út í sex þáttum—þar sem framferði bandaríska tónlistarmannsins R. Kelly í garð kvenna er í brennidepli.
Nánar: https://www.mylifetime.com/sho…
Samkvæmt þeim upplýsingum sem eru að finna á heimasíðu Lifetime ræða framleiðendur seríunnar við u.þ.b. 50 viðmælendur, þar á meðal fjölmargar konur sem saka Kelly um kynferðislegt og andlegt ofbeldi. Þá er söngvarinn einnig sakaður um að hafa svipt nokkrar konur frelsi og haldið þeim í kynlífsánauð.
Meðal viðmælenda seríunnar er baráttukonan Tarana Burke (stofnandi MeToo byltingarinnar); tónlistarmaðurinn John Legend; sjónvarpskonan Wendy Williams og fyrrverandi eiginkona R. Kelly, Andrea Kelly.
Í aðdraganda útgáfu Surviving R. Kelly sendi söngvarinn frá sér lagið Born To My Music á Soundcloud í gær (sjá hér að neðan).
Í texta lagsins virðist Kelly reyna að draga athygli hlustenda frá einkalífi sínu og að tónlistinni. Lagið er tileinkað því fólki sem fæddist á tíunda áratugnum, og þá, að öllum líkindum—samkvæmt Kelly—sökum tónlist hans:
Here’s to all the ’90s babies /
Single mothers and daddies, maybes /
Whether rich or whether poor /
This is who this song is for /
‘Cause I know that:
You were born to my music /
Sumsé,
Tónlist mín er ástæðan fyrir tilvist ykkar.
Hér fyrir neðan má sjá brot af nokkrum viðtölum sem birtast í heimildarseríunni Surviving R. Kelly.
Þess má einnig geta að í gær (1. janúar) sögðu fréttamiðlar vestan hafs frá meintu samræði Kelly og söngkonunnar Aaliyah—þegar hin síðarnefnda var aðeins 15 ára gömul. Frá þessu greinir Jovante Cunningham, fyrrum bakraddasöngvari Kelly, í fyrrnefndri heimildarmynd.